![]() Besti fyrrverandi forseti Bandaríkjanna er Jimmy Carter. Hann er á níræðisaldri en ötull baráttumaður fyrir bættum hag fátækra í Afríku. Fyrir meira en 20 árum tók hann til við að útrýma sjúkdómi sem hlýst af lirfu orms sem tekur sér bólfestu í holdi manna. Lirfan þroskast inni í líkama fólks sem drekkur eða baðar sig í óhollu vatni. Ormurinn brýst að lokum út fullvaxinn og stendur eins og spaghettilengja úr fólki sem engist af kvölum. Áður þjáðust 3 milljónir manna árlega af þessari bölvun, nú eru árleg tilfelli 12.000. Með örlítið meiri stuðningi hefði Carter og fjölmörgum öðrum sem vinna gegn þessum ormi tekist að útrýma honum með öllu. Þetta dæmi og mörg önnur sýna að talið um að þróunaraðstoð þýði ekki neitt á sér aðra hlið: Marktækan árangur sem bjargað hefur lífi milljóna manna eða bætt umtalsvert. Almennar bólusetningar á börnum hafa á liðnum áratugum náð miklu víðar en áður og tugir milljóna barna eru nú á lífi, en hefðu ekki verið það án átaks sem ráðist var í. Bólusetning við helstu sjúkdómum sem kostar innan við 2 þúsund krónur á barn. (Fyrir Fréttablaðið des. 2007.) Sjá mun ítarlegri grein á ensku úr New York Times um mörg svipuð mál |
![]() |
Rafbókin fæst á aðeins 2990! |
Bókin sem talað er um, á mannamótum og fjölmiðlum:
Egill Helgason í Silfrinu tók ítarviðtal
Kiljan, Þorgeir og Kolbrún: Frábær leiðsögumaður! Frá 6. mínútu.
Sverrir Norland Rás 1: Allur þátturinn Upp á nýtt.
Gunnar Smári: Rauða borðið: 90 mínútur, mest um bókina í síðari hluta.
Þórunn Elísabet, Morgunvaktin: eftir eina klst og 18 mínutur á mælinum.
Gísli Marteinn: Þáttur með góðum gestum.
Rafbókarkaupin eru einföld á síðu Forlagsins og þú færð hana beint í tölvu eða á lesbretti samstundis!

![]() |
Persónuleg heimildasaga |
Í þessari bók segir Stefán Jón Hafstein frá. Hann á að baki langan feril við þróunarsamvinnuverkefni í Afríku og hjá alþjóðastofnunum. Hann býr að yfirsýn og reynslu sem hann nýtir til að miðla þekkingu sem varðar okkur öll á þann hátt að auðskilið verður.
Leiðarstefið er ljóst: Allt tengist. Loftslagsváin er eitt stórvandamál og ósjálfbær matvælaframleiðsla sífellt stækkandi mannkyns annað. Hrun vistkerfanna tengist manninum sem er einræðisherra á jörðinni og misnotar vald sitt.

![]() |
Viðtal um spillingu |
Hér er birt uppskrift að viðtali sem tekið var í Silfri Egils í janúar 2012. Viðtalið fór víða og hefur mikið verið leikið á youtube.com. Hér eru valdir kaflar sem enn eiga við, því miður, um spillingu á Íslandi og fleira henni tengt.

![]() |
Táknmál fyrir alla í Zimbabwe |
Í Zimbabwe hafa þau gefið út einfalda táknmálsorðabók fyrir almenning svo hægt sé að læra undirstöðuatriðin í því að tala við heyrnarlausa. Einföld bók, ódýr og kennir undirstöðuatriðin. Í Zimbabwe, Botswana og Namibíu eru sjónvarpsfréttir táknaðar á táknmáli jafnóðum og þær eru fluttar heyrandi. Það er ekki hægt á Íslandi.

![]() |
Tveir á palli |

Hlaðnir vörubílar taka tóma brúsa til að kaupa eldsneyti, fulla poka til að selja á markaði, og fjölda fólks á ferð sem þarf að komast leiðar sinnar. Meðan vörubíllinn brunar kjafta þessir tveir á palli og vegurinn framundan er beinn og breiður.

![]() |
Fas barna |

Þrjár hnátur á ferð. Kraftur, fjör, leikur í fótataki og fullorðinshjólið skal með. Gæti verið hvar sem er í heiminum.

![]() |
Hlébarðaskítur |

Merkilegur fundur á mörkinni. Hér skeit hlébarði eftir góða næturveiði. Við sjáfum leyfar af feldi antilópu og beinarusl. Hýena hefði melt beinin líka og skitið hvítu. Svona má lesa landið og læra af skítnum hver var á ferð! Svartur ljónaskítur táknar að ljónið drakk mikið blóð....

![]() |
Gjugg! |

Stundum þykjast konurnar við vegarbrúnina vera andsnúnar því að sitja fyrir á mynd. Þær vilja fyrst selja manni tómata og þá hugsanlega má ræða myndatöku. Heimamenn hafa lært að nú má skoða myndir á stafrænum myndavélum strax að töku lokinni og vilja garnan fá að sjá, það er hin besta skemmtun sem ráða má af hlátrasköllum og flissi kvennanna. Þessi til hægri vildi endilega vera með!

![]() |
Listamenn selja bílavarahluti |

Þegar ljósaskiltin eru of dýr, prentkostnaður líka, og kannski ekki úr miklu að moða með starfræna ljósmyndatækni, grípur maður pensilinn og trönurnar og málar lagerinn á búðina! Heddpakkningar, kerti og platínur, olíudælur og demparar: Við eina af aðalgötum Maputo í Mósambik hafa hin listrænu tilþrif bílavarahlutasalanna sett menningarlegan blæ á viðskipti sem að öllu jöfnu þykja heldur ,,ófín". Hér má sjá listaverkin í myndaröð.

![]() |
Bolir! Buxur! Og allskonar! |

Það þarf næmt auga fyrir hinu sjónræna til að búa til svona innsetningu. Á Vesturlöndum stundar fólk listnám á háskólastigi til að komast í þennan ,,Dieter Roth" klassa, en í Mósambik þarf bara duglega kvinnu sem veit hvað selst til að setja upp svona veislu fyrir augað.

![]() |
Piri Piri |

Heimagerð piparsósa, Piri Piri, sem er eitt höfuðeinkenni á matargerð í Mósambik og víðar um sunnanverða Afríku. Hér er metnaðarfull kona á ferð, komin með hannað söluskilti við þjóðveginnn og eigin ,,merki" á flöskurnar, uppvaxandi stórveldi ef marka má markaðssetninguna. En hún var ekki við sjálf þegar við renndum hjá!

![]() |
Yfirlýsing á bol |

Lífið er fiskur. Nær Sölku Völku verður ekki komist á suðlægum breiddargráðum í fiskiþorpi.

![]() |
Fiskiörninn vakir |
Fiskirörninn eignar sér tré og horfir vökulum augum yfir veiðilendur sínar. Við trjábolinn hafa termítarnir komið sér upp haug.

![]() |
Hætta til hægri |


![]() |
Oryx |
Einkennisdýr Namibíu, ein fegursta og stæltasta antilópan. Metur vel eyðimerkur og getur verið langtímum saman án vatns, einstaklega hitaþolin skepna. Vegur 600-800 kíló og drepur hæglega ljón með hornum sínum. Það er tignarlegt að sjá hafrana renna saman og heyra glym hornanna þegar þeir láta finna fyrir sér í slagnum um forystu í hjörðinni.
Það er merkilegt að bæði kyn hafa þessi stóru horn og ekki auðvelt að greina mun á þegar fara saman stórar hjarðir. Athyglisverð tilgáta er um þetta: Þar sem kynjunum svipar svo saman umbera gömlu tarfarnir frekar ung karldýr sín á meðal lengur en gengur og gerist í antilópuhjörðum. Þetta eykur til muna lífslíkur ungra tarfa því þeir njóta verndar móður þeim mun lengur í harðbýlu landi. En svo kemur sá dagur að þeir verða að víkja.
Oryx er ljúffeng skepna sem engin kjötæta ætti að láta fram hjá sér fara án þess að fá vatn í munninn.

![]() |
Minjar um gamla tíma |

Þjóðverjar ,,áttu" Namibíu og reistu þetta hús í þjóðleið, á því stendur ártalið 1908. Um það bil sem Íslendingar fengu heimastjórn fengu Namibíumenn þýskan arkitektúr í bæjum og úti á mörkinni. Hér gistu lestir á leið frá ströndinni inn í land.

![]() |
Börn að leik |

Börnunum í Namibíu finnst ákaflega gaman að því þegar tekin er mynd af þeim. Og á þessum róló í Usakos er ekki mikið um að vera, nema þetta fjör sem skapast þegar mörg börn koma saman og útlendingurinn tekur myndir!

![]() |
Á borgarafundi |
Aldraður Himbi situr borgarafund um vatnsból og leikskóla.
