24.9.2010
Ísland og Þúsaldarmarkmiðin

(Sept. 2010)

Eitt sinn töluðu menn um stjarnfræðilegar upphæðir í efnahagsmálum. Nú eru stjarnfræðingar farnir að tala um efnahagslegar tölur til að lýsa alheiminum. Vitna þá í hrunkostnað og margvíslegan stríðsrekstur. Stríðið í Írak búið að kosta þrjú þúsund milljarða dollara, og bankakreppan á Wall Street skammt undan, fyrir utan hruntölur víðar að. Afgahanistan ótalið. Öll þessi núll og aukastafir rugla jafnvel þá í ríminu sem glíma við sólkerfi og vetrarbrautir. Í þessu sambandi er ein tala mjög lítil: 20 milljarðar dollara. Hún er talan sem segir hve mikið vantar uppá að ríku löndin standi við loforð sín um þróunaraðstoð í ár. Lág tala á mælikvarða mannlegra mistaka, en myndi muna mikið um hana hjá fátæka fólkinu. Ekki síst hjá þeim þeim litla milljarði manna sem lifir af 170 krónum á dag.

Markmiðin forgangsraða

Nú hafa leiðtogar heimsins enn fundað um svonefnd Þúsaldarmarkmið, sem eru skilgreining á þeim markmiðum sem menn setja sér að ná fyrir fátæku löndin árið 2015. Fimm ár til stefnu og þótt margt hafi áunnist er ennþá svo langt í land að fimm ár duga engan veginn. Aldamótin síðustu voru notuð til að spíta í lófana í þróunarmálum, skilgreina forgangsröðina betur og setja háleit markmið sem átti að ná á stuttum tíma. Kosturinn við þessi markmið er sá að þau snúast um hluti sem auðvelt er að ná samstöðu um: Hjálpa þeim sem búa við mesta örbirgð, koma í veg fyrir að konur farist úr barnsnauð, stemma stigu við hættulegum sjúkdómum, tryggja öllum börnum grunnskólagöngu og koma í veg fyrir hungur. Ókosturinn við þau er hins vegar sá að séu þau ekki löguð að aðstæðum hverju sinni passa þau hvergi.

Ísland og þúsaldarmarkmiðin

Ef íslensk þróunaraðstoð í Malaví er skoðuð þá fylgir hún grunnhugsun þúsaldarmarkmiðanna. Eitt þeirra er að útvega hreint vatn og hreinlætisaðstöðu. Í ár lýkur verkefni sem gengur einmitt út á að koma upp nokkur hundruð vatnsbólum í þorpum þar sem engin voru fyrir; 20 þúsund heimili munu njóta. Í þessum mánuði verður tekin í notkun ný fæðingardeild í litlu þorpssjúkrahúsi sem Íslendingar hafa byggt upp. Konur sem áður fæddu á bastmottum í leirkofum úti í þorpunum fá nú aðgang að góðri fæðingardeild og sængurkvennaþjónustu. Spítalinn er líka með litla skurðstofu sem var opnuð fyrir tveimur árum, þar er hægt að gera keisaraskurði í neyðartilvikum, í stað þess að bíða sjúkrabíls og aka 50 km leið. Í afskekkri sveit eru verkamenn að hefja smíði á fæðingargangi við litla heilsugæslustöð sem þjónar 15.000 manns. Marga mánuði á ári eru allir vegir ófærir meðan regntíminn stendur og útilokað að koma konu í barnsnauð til aðstoðar með sjúkrabíl. Hver kona á að meðaltali sex börn svo ljóst má vera að í þessari sveit er rík þörf fyrir þjónustu af þessu tagi. Þessir hlutir stuðla að því að Malví mun geta sýnt fram á lækkaða dánartíðni mæðra og ungbarna árið 2015. Ekki má gleyma að í héraðinu hafa Íslendingar byggt eða endurgert 23 grunnskóla. Þar vinnum við líka samkvæmt þúsaldarmarkmiðunum og vantar enn mikið uppá, í þessu 800 þúsund manna héraði eru 300 000 börn á grunnskólaaldri og meira en helmingur hefur ekki skólastofu til að sitja í, heldur fer kennsla fram undir tré. Ólæsi er mikið í þessu héraði, meira en helmingur kvenna ólæs. Íslendingar styrkja 90 leshringi fyrir fullorðinnafræðslu.

Horft að neðan


Meðan hinir háu herrar og frúr ræddu stöðu mála á þingi Sameinðu þjóðanna gekk lífið sinn vanagang við Malavívatn. Sjúkrabílarnir sem Íslendingar gáfu voru stöðugt á ferðinni. Vonast er til að gólfdúkurinn á nýju fæðingardeildinna komist á alveg næstu daga og þá verður nýjum fæðingjarbekkjum rúllað inn. Við fengum fregnir af því að verktakinn væri kominn á vettvang til að grafa fyrir viðbyggingu í heilsugæslunstöðinni í sveitinni afskekktu, nú hefst kapphlaup við tímann því rigningarnar byrja í desember. Við sendum smotterí af byggingarefni sem vantaði til þorpsbúa úti á mörkinni, þeir ákváðu að byggja sjálfir skólastofur en fengu aðstoð frá okkur með steypu og járn. Upphæðin er svo lág að hún mælist ekki á hinum stóra kvarða þúsaldarmarkmiðanna. Samt eru þessar skólastofur hluti af þeim. Það er ágætt að vita til þess að þassar áþreifanlegu og raunverulegu lífskjarabætur muni á endanum rata inn í skýrslur og verða hluti af aukastöfum og prósentum sem vera ræddar af kappi í þingsölum um víða veröld.


Til baka
Stefán Jón Hafstein - stefanjon@islandia.is