Afríkuboltinn er ekkert grín: Sameiningartákn, draumur, þrælabúðir, sóun á fátækrafé og taumglaus gleði þegar vel gengur! Hér er skýrslan eftir Afríkubikarkeppnina í Angóla: Fagnaðarlæti í Kaíró í heilan sólarhring, Faróarnir koma heim með þriðja Afríkubikarinn, synd að þeir verða ekki með á HM, lang besta lið Afríku. Tíunda besta lið í heimi samkvæmt lista FIFA. Kona á götu úti í Karíró við heimkomu bikarsins: ,,Þetta er ekki bara fótbolti, þetta er spurning um þjóðarstolt, einingu og finna til saman". Kannast einhver við þessa lýsingu? Það fór eins og menn vissu fyrr í keppninni: Leikur Faróanna og Eyðimerkurrefanna var leikur hefndarinnar. Egyptar geta nú fagnað því að hafa hent ófaranna í Kartúm þegar Alsír sló þá út úr HM; 4-0 var endastöðin og þrír Alsírrefir sendir af velli.
Það voru Faróarnir og Svörtu stjörnurnar sem léku úrslitaleik. Því Nígería fór illa að ráði sínu í undanúrslitum: Varnarmenn sátu á bekknum og báðu bænir hástöfum og horfðu til himins, það voru tvær mínútur eftir og Ofurernirnir voru marki undir gegn Svörtu stjörnunum frá Gana, undanúrslit og nú gat enginn nema Guð á himnum bjargað Nígeríu. Skotskórnir höfðu orðið eftir einhvers staðar og Ganamenn ógnuðu marki Ofurarnanna aðeins einu sinni í leiknum, það var nóg, hornspyrna og skalli á stöngina nær. Ungu stjörnurnar voru komnar í úrslit í fyrsta skipti í 18 ár í Afríkubikarkeppni. Óvinsæl stórstjarna ,,Við spiluðum einum manni færri allt mótið" sagði svekktur stuðningsmaður Fílanna eftir tap gefn Eyðimerkurrefunum og þar með brotthvarf af mótinu. ,,Didier Droghba gerði ekki neitt allt mótið, ég ætla bara að vona að hann reyni ekki að tala við okkur hér heima" bætti annar við. Já, það er ekkert ,,strákarnir okkar" núna á Fílabeinsströndinni. Tap er tap og liðið sem talið var sigurstranglegast með allar sínar stjörnur fór heim. Ungu Svörtu stjörnurnar frá Gana skinu skært og unnu heimamenn í Angóla. Hátíð í Malaví! Þótt Logarnir frá Malaví hafi aldrei komist lengra en að vinna einn leik var tekið vel á móti þeim á flugvellinum, stuðningsmenn mættu og klöppuðu þeim á bakið. Enda var hvílík hátíð í landinu eftir fyrsta leikinn! Það leyndi sér ekki þegar fyrstli leikurinn var hafinn: Á götuhornum stóð fólk og veifaði, aðrir dönsuðu og bílstjórar hrópuðu sín í milli á þeim fáu rauðu ljósum sem eru í borginni. Allir með tvo fingur á lofti, sigurtáknið, V. ,,Hver fjandinn" hugsaði ég, getur verið að Malaví hafi skorað tvö mörk? Ég renndi yfir á aðra útvarpsstöð og skildi ekkert sem sagt var í beinni útsendingu frá fótboltaleik nema orðin Malaví two zero! Í matvöruverslun var þjóðhátíð. Fólk söng og blístraði og svo fór undarlegur kliður um mannskapinn, búrsveinn kom dansandi fram og hrópaði og pokadýrin tóku gleðikipp: Þrjú núll! Kassadaman söng. Angóla, hvers vegna? Ein stór spurning varðandi svona mót er: Hvað með forgangsröð? Er fótbolti alltaf fyrstur? 60% íbúa Angóla hafa minna en tvo dollara á dag í tekjur en nú var varið milljörðum dollara í að halda mót í knattspyrnu. Fjórir risavellir byggðir og allt gert til að taka á móti fjölda gesta, samt tók 5-7 tíma að komast bæjarhluta á milli til að fara á völlinn. Hvað verður svo um þessi mannvirki? Ekki er hægt að breyta þeim í skóla eða sjúkrahús. Svo mikið er víst. En fótbolti er miklu meira en spurning um líf og dauða. Það þarf ekki mikið til að fylla litla fátæka þjóð eins og Malava óhemju stolti. Þrjú núll! Stærsti sigur í sögu landsins. Það eru 25 ár síðan Malaví komst á Afríkubikarkeppnina. Litla Malaví er neðst á listanum yfir afrek þeirra liða sem komust áfram í keppnina í Angóla. Um tíma leit út fyrir að skotárás á lið Togo og brotthvarf þeirra manna yrði til að taka allan vind úr keppninni, en fótboltamenn virðast hafa þann eiginleika að gleyma fljótt. Boltinn tók að rúlla og allt í einu var litla Malaví á hvers manns vörum! Heimamenn frá Angóla opnuðu mótið með mesta klúðri sem sést hefur, voru með 4-0 gegn Malí þegar 10 mínútur voru eftir og misstu stöðuna í 4-4! Hvernig í ósköpunum? Ja, ef leikurinn hefði verið mínútu lengur hefði Malí líklega skorað fimmta markið sagði þulurinn. Fótbolti: Sameiningartákn og draumur um betra líf Fótbolti er stundum eina sameiningartákn þjóða og ættbálka innan ríkja Afríku. Sagt er að Nígeríumenn eigi ekkert sameiginlegt nema fótboltalandsliðið. Um alla álfuna er fótbolti tákn um sjálfstæði ríkis og drauma ungra manna um frægð og frama þegar fátt annað er í boði. Óprúttnir umboðsmenn skilja eftir sig sviðinn svörð í leit að næsta Essien eða Droghba. Ungir og knattleiknir strákar fá smá summu sem fer til mömmu og pabba þegar þeir skrá sig barnungir í æfingabúðir í Asíu af því að svona barnaþrælkun er bönnuð í Evrópu. Flestir komast ekki í neinn atvinnumannabolta en það má alltaf láta sig dreyma. Er kvennabolti í Afríku? Já, Rúanda á sterkt kvennalið og hér í Malaví spyrna þær líka. En augun eru á aljþóðlegu stjörnunum sem spila með stóru liðunum. Í morgunfréttum á mánudögum er alltaf sérstakur pistill um það hvernig Afríkumennirnir stóðu sig í stóru liðunum um helgina, þarna uppi í Evrópu hjá Chealsea, Man Un og Barcelona. Ekki jafn broslegt og gengi ,,Íslendingaliðanna" í þriðju deildum Norðurlanda. Það voru nýlendurherrarnir og trúboðar sem kenndu Afríkumönnum að spyrna knetti, og síðan hefur boltinn rúllað og gerir enn: Samanvafðar dulur, svipaðar plastpoka og þéttvafðar snæri; þannig verður til knöttur sem hægt er að skjóta í mark sem eru stofnar tveggja trjáa. Og láta sig dreyma. Stórstjörnur voru hálf lélegar Afríski boltinn er opinn og bráðfjörugur. Menn voru þrælspenntir þegar Gana og Fílabeinsströndin runnu saman, vinir og félagar úr Chelsea, Essian og Drogba hvor í sínu liði og hvernig myndi það fara? Ja, Drogba náði næstum að jarða Essien með tæklingu, og Essien ný staðinn upp úr meiðslum! Fílarnir komust i eitt núll með glæsilega útfærðu marki en hinar ungu og hugumstóru Svörtu stjörnur náðu sér á strik og þegar Fílarnir misstu mann útaf leit þetta ekki illa út, boltinn small í stöng og allt að verða vitlaust. Þetta var ,,stórveldaslagur" því miklar vonir eru bundnar við bæði lið sem nú þegar stefna á heimsbikarkeppnina í Suður Afríku í sumar. En Fílarnir tóku aukaspyrnu af 32 metra færi og boltinn skrúfaðist inn í skeytin óverjandi og svo bætti Drogba við skallamarki undir lokinn - einum færri! Svörtu stjörnurnar máttu lúta í gras svo notað sér vel þekkt orðalag. Pressan er rosaleg. Ofur Ernirnir frá Nígeríu þruftu að sanna sig gegn Íkornunum frá Benín. Svörtu hlébarðarnir frá Kamerún eru undir gríðarlegu álagi eftir slæma byrjun - töpuðu fyrir Gabon!- og vei þeim frá Alsír sem töpuðu fyrir Logunum frá Malaví! Afríka stóð á öndinni því hér í álfu þar sem einn milljarður manna býr og fleiri fátæklingar en í nokkurrri annarri heimsálfu er þetta sjóv sem enginn vill missa af. En stóru stjörnurnar frá ensku liðunum og þeim spánsku voru allt annað en augnayndi. Hvað segir þetta um HM í Suður Afríku? Ja, sáralítið nema besta lið Afríku verður ekki með. Ósigraðir á Afríkubikarmóti síðan 2006, nítján leiki í röð, búnir að vinna þrjú Afríkubikarmót í röð. Faróarnir sitja heima. Liðin frá Afríku þurfa að bæta sig til að eiga von í svo mikið sem undanúrslit á HM. Álfan hefur stóra drauma um að hreppa heimsbikarinn í sumar í Suður Afríku en fátt bendir til að svo fari. Bafana Bafana, lið heimamanna, hefur verið óhemju slakt að undanförnu og valdið verulegum áhyggjum því allir eru sammála um að gengi suður afríska liðsins skipti miklu fyrir mótið. Ungu stjörnurnar frá Gana þurfa á sínum bestu mönnum að halda en náðu ekki að koma liðinu saman með sannfærandi hætti þótt í úrslit kæmust. Nígeríumenn voru heillum horfnir, Kamerún og Fílabeinsströndin sýndu fádæma fína takta en duttu svo niður á milli. Draumurinn um svartan sigur á HM í júní er ansi langt undan. |
Tilboð |
Tilboðsverð: Afhending á Reykjavíkursvæði, kr. 4000
Sett í póst: 4500 ef pöntunin er út á land.
Sendið pöntun í pósti á stefanjon@islandia.is
Rafbókin fæst á forlagid.is
English version on Amazon and Itunes from May 1st 2024
Heimurinn eins og hann er í Sílfrinu Byrjar á 47. mínútu.
Ítarlegt viðtal Egils Helgasonar við höfund.
Rafbókin fæst á aðeins 2990! |
Bókin sem talað er um, á mannamótum og fjölmiðlum:
Egill Helgason í Silfrinu tók ítarviðtal
Kiljan, Þorgeir og Kolbrún: Frábær leiðsögumaður! Frá 6. mínútu.
Sverrir Norland Rás 1: Allur þátturinn Upp á nýtt.
Gunnar Smári: Rauða borðið: 90 mínútur, mest um bókina í síðari hluta.
Þórunn Elísabet, Morgunvaktin: eftir eina klst og 18 mínutur á mælinum.
Gísli Marteinn: Þáttur með góðum gestum.
Rafbókarkaupin eru einföld á síðu Forlagsins og þú færð hana beint í tölvu eða á lesbretti samstundis!
Hvers konar forseti? |
Haustið 2015 sendi ég út bréf á allstóran hóp fólks sem ég bað um að taka þátt í umræðu um hlutverk forseta Íslands, könnun þar að lútandi, um leið og ég kynnti Fésbókarsíðu um málið.
Spurt hefur verið um efni þessa bréfs sem var kynnt hér á síðunni samtímis.
Einkaritarafuglinn |
Hvers vegna hann heitir Einkaritarafuglinn (Secretary bird) er algjörlega vonlaust að ráða af útlitinu. En hann er háfættur og með ansi langt stél og vappar virðulega við andapollinn.
Hrísburður |
Orkugjafar landsmanna í Malaví eru einkum viður og kol. Aðeins 8% landsmanna hafa rafmagn en aðrir þurfa að bera eldivið eða hjóla með kol. Landeyðing er mikil og gróðurmold hverfur þegar skógarhögg gengur of nærri landinu. Konur og karlar bera þungar byrðar langa vegu til að eiga eld undir maísgraut kvöldsins.
Drjúg eru morgunverkin |
Morgun á Malavívatni. Bátarnir komnir út og það má heyra skvaldið í köllunum mörg hundruð metra í land í algleymislogni þegar sólin kemur upp. Ekkert truflar myndina nema fugl sem flýgur hjá.
Ungur maður á uppleið |
Ungur himbi frá norðurhéruðum Namibíu. Hárskurður og skraut segja til um þjóðfélagsstöðu himbanna og þessi ungi maður er rétt að verða fullorðinn. Hann er ókvæntur þvi hárgreiðslan og klippingin sýnir stöðu ungs piparsveins. Hann er hins vegar orðinn karlmaður og mun senn leita sér kvonfangs. Ungir menn á þessum aldrei ganga með svona hárskurð sem endar í langri sveigðri fléttu aftúr. Eða, þeir ganga með húfur með sama lagi, oft eru þær eins og bátar. Hann er ekki kominn með hinn þunga málmhring um hálsinn, en hann fá menn þegar þeir kvænast, og þá raka þeir sig alveg niður í hársvörð og ganga með kollhúfur eftir það. Þegar kemur að því að ungi maðurinn leitar sér eiginkonu munu konurnar (móðir eða frænkur) ganga á milli og spyrjast fyrir um þá sem hann hefur augastað á. Takist samningar þarf hann að gefa föður hennar fagurhyrnt naut með hala sem nær til jarðar, og tvær mjólkandi kvígur með. Komist hann í álnir getur hann leitað sér fleiri kvenna og haft þær allt upp í sex. Himbar telja auð sinn í barnafjölda og nautgripum.
Gleðistund |
,,Þakkir til Íslands" var það sem stóð upp úr hópnum sem kom saman við nýja fæðingardeild og uppgerða heilsugæslustöð í Chilonga í Mangochi. Við erum þarna í afskekktri sveit, verktaki og formaður hans, ráðgjafar frá sjúkrahúsinu sem Íslendingar byggðu í Monkey Bay, og fleiri áhugasamir. Þorpsbúar í nærliggjandi þorpum hafa þegar safnað sandi og múrsteinum til að byggja starfsmannahús til að hægt verði að tryggja lærðu fagfólki góða aðstöðu. 20 þúsund manna byggð fær nú fysta fæðingarganginn og ungbarnaeftirlitið færist undan tré og inn í skjól. Við tókum við húsinu daginn eftir alþjóðlega ljósmæðradaginn og nú eru rúm og tæki að leið út í sveitina.
Töff hárgreiðsla |
Þessi mósambíska stúlka er sannarlega hárprúð í besta skilningi orðsins.
Fiskimenn á pramma |
Á stærsta uppistöðulóni Afríku, Cahorra Bassa í Mósambik eru þessir prammar og stunda uppsjávarfiskveiðar um nætur. Ljós eru notuð til að lokka smáfiskinn upp í torfum og þær látnar synda yfir nótina sem hangir í krana framaná. Hífoppið nægir svo til að fanga fiskinn. Þessar veiðar skapa miklar tekjur fyrir tugþúsindir tonna og varð af óvæntur ávinningur til hliðar við virkjunina sem knúin er vatni úr lóninu.
Stóra jólabarn |
Það er myndarbolti sem þenur vogina á spítalanum sem Íslendingar byggðu við Apaflóa. Hjúkkurnar standa ánægðar hjá enda ekki alltaf sem svona stóra krakka rekur á fjöru ungbarnaeftirlitsins. En það hafa verið góðir tímar og mamma með brjóstið til reiðu eins og sjá má. Sjá myndband um verkefni Íslendinga í Malaví hér.
Hin bjarta hönd |
Krakkarnir baða sig í Malavívatni og veifa glöð í bragði til bátsverja sem eiga leið hjá.
Góð þjónusta |
Í strákofanum er rakarastofa og maður fær farsímann hlaðinn á meðan klippt er hjá ,,Glæsirakaranum" (Glory barber). Nú, maður getur líka fengið hleðslu en þarf ekki að klippa sig jafnframt.
Alnæmi og páfi |
Afríkuför páfa (mars 2009) varð ekki til að auka hróður hans í sambandi við baráttuna gegn Alnæmi. Mikil gagnrýni hefur dunið á páfa fyrir að leggja ekki baráttunni lið, heldur skaða hana, með því að tala gegn notkun smokka. En smokkar eru eins og aðrar getnaðarvarnir bannfærðar af kaþólsku kirkjunni svo páfi er sjálfum sér samkvæmur. Það hjálpar bara ekki í Alnæmisbaráttunni. Meira hér.
Vitjun |
Sjálfboðaliðar Rauða krossins í suðurhluta Malaví eru á leið í vitjun. Þau heimsækja alæmissmitaða í þorpnu, athuga hvernig þeim líður og hvernig lyfjastaðan er. Oft eru þessar heimsóknir þær einu sem fólk fær. Sjálfboðaliðarnir vinna kauplaust, en fá smávægilegan matarpakka í viðurkenningarskyni einu sinni í mánuði.
Sitja saman |
Alnæmissjúkir sitja saman - og standa saman. Þetta er stuðningshópur smitaðra í einu litlu þorpi í sveitinni í Malaví. Þau sem bera HIV veiruna koma saman, ræða málin, veita stuðning og segja að sér líði betur fyrir vikið. Rauði kross Malaví kemur þessum hópum á laggirnar og veitir þeim styrk og aðstoð til að bæta lífið. Þau ræða næringarmál, bestu leiðir til að styrkja ónæmiskerfið, og rækta grænmeti í garði skammt undan - til að hafa hollan og góðan mat.
Fiskverkun hafin! |
Smiðirnir við fiskverkunarstöðina sem Þróunarsamvinnustofnun byggir nú með heimamönnum vita hvað dugar í lífsbaráttunni. Meðan hamarshöggin dynja nota þeir þurrkhjallana til að breiða út smáfisk á vírnet og þurrka í sólinni. Þetta er ,,skreið" heimamanna, fiskurinn á stærð við löngutöng en dugar vel í eggjahvíturíkt viðbit með maís. Hér verður reykt og þurrkað og verkað á ýmsa lund til að koma fiski á markað. Nú vantar bara togara! segja þeir og eru ekki ólíkir héraðshöfðingjum í sjávarþorpum heima. Strax er byrjað að vinna í stjórnvöldum til að fá togskip til að leggja upp.
Hægt um horn |
Hún fer hægt um horn og varar sig á myndavél framhjágöngumanns, en ekki alveg nógu vel. Ein sekúnda í eilífðinni er fest á spjöld sögunnar í sveitaþorpinu.
Veftímarit - áskrift |
Veftímaritið kemur til áskrifenda gjaldfrjálst. Skráning hér.
Hér má skoða fyrri tölublöð:
Uppskera |
Uppskera. San kona í austurhluta Namibíu tekur þátt í ,,síldarævintýri” þessa landshluta. Nokkra daga á ári er hægt að fara út á mörkina og safna þessum rótum sem keyptar eru dýru verði til heilsubúða í Þýskalandi. Úr lauknum eru unnin efni sem eiga að gera mannfólki gott. San fólk hefur ekki úr miklu að spila og peningar sjaldséðir, svo þetta er kærkomin búbót. En ekki má taka of mikið og reynt er að hafa stjórn á því sem numið er á brott með því að beita ,,sóknarstýringu”; uppskeruhátíðin stendur því fáa daga á ári, utan þeirra er bannað að grafa laukinn upp.
Á útkíkki |
Á billanum |
Þessi unga snót hanleikur kjuðann af fimi á Soweto markaðnum í Katatura í Windhoek.
Asnar á bensínstöð |
Asnakerra á bensínstöð. Allir þurfa að fylla.
Ökuskóli norður Namibíu |
Ökuskóli á hjólum. Auðvitað!
Stolt móðir |
Bea á markaðnum var ekki bara með nýja hárgreiðslu heldur var strákurinn þægur allt í einu. Svona eiga góðir dagar að vera!
Við notum smokka |
Í landi þar sem 20% fullorðinna eru með HIV smit þarf sannarlega að minna á varnir. Sjá HIV stöðuna í Namibíu samkvæmt UNAIDS. Í Afríku sunnan Sahara búa 10% mannkyns en 60% smitaðra.
Minjar um gamla tíma |
Þjóðverjar ,,áttu" Namibíu og reistu þetta hús í þjóðleið, á því stendur ártalið 1908. Um það bil sem Íslendingar fengu heimastjórn fengu Namibíumenn þýskan arkitektúr í bæjum og úti á mörkinni. Hér gistu lestir á leið frá ströndinni inn í land.
Blair, við og ,,þau" |
Hvernig réttlætir Tony Blair stríðin í Afgahanistan og Írak? Í athygliverðri grein í Foreign Affairs kemur í ljós að leiðin sem hann kaus með Bush er einmitt ekki leiðin sem hann telur vænlegasta til framtíðar.
Hér er rýni á grein Blairs.